Metfali í netaralli
Miðvikudagur, 18. maí 2011 12:31

Metafli varð í árlegu netaralli Hafrannsóknastofnunarinnar sem lauk 20. apríl. Sex bátar tóku þátt. Þorskaflinn varð 800 tonn, sem er mesti afli frá upphafi. Í fyrra var hann 500 tæp tonn og tæp 600 tonn árið þar í hitteðfyrra. Afli í netarallinu hefur aukist frá árinu 2007 sem er í samræmi við hækkun á stofnvísitölu þorsks í togararalli. Undanfarin ár hefur stofnvísitala þorsks farið hækkandi í togararallinu, en einkum má rekja það til þess að meira er að stærri þorski. Í netarallinu var mjög góð veiði á öllum svæðum fyrir utan kantinn austur af Vestmannaeyjum, en aflinn þar var lélegur þriðja árið í röð.
argaiv1504

 

 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso