|
Kristján Möller vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri |
|
Mánudagur, 18. júlí 2011 16:14 |
Kristján L Möller fyrrum samgönguráðherra segir hugmyndir þess efnis að flytja Reykjavíkurflugvöll á Hólmsheiði vera arfavitlausar og verði hann fluttur til Keflavíkur muni það ganga af innanlandsflugi dauðu. Kristján segir að það séu einingis tveir kostir í stöðunni, það sé annað hvort að hafa flugvöllinn þar sem hann er, eða flytja hann til Keflavíkur. Hann segir að ef seinni kosturinn verði farinn muni hann valda því að innanlandsflug leggist af með öllu innan tíðar, enda séu farþegar ekki almennt tilbúnir að bæta við aukaklukkustund við ferðalag sitt með því að aka til og frá Keflavík. Hann segir að uppbygging flugvallar á Hólmsheiði séu aðeins draumórar enda sé kostnaður við þær framkvæmdir á bilinu 35 til 40 milljarðar en það sé alltof dýr framkvæmd, auk þess sem flugskilyrði á heiðinni séu afar slök. Hann segir að land sem ríkið á í Vatnsmýrinni sé talsvert stórt en veltir fyrir sér hvort ríkið ætli í einhverju samningamakki við borgaryfirvöld að afsala sér landspildunni. Hann segir óvissuna í málefnum Reykjavíkurflugvallar valda því að eðlileg þróun flugvallarstarfsemi nái ekki fram að ganga.
|
Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.
" Heart failure is most common in people
order cialis online no prescription. Usual Adult Dose of Carvedilol for Congestive Heart Failure:The nitroglycerin sublingual tablet must be placed under your tongue and allowed to dissolve slowly
tadalafil dosage.
argaiv1095