Haraldur Noregskonungur ávarpar árásarmennina
Föstudagur, 22. júlí 2011 23:51
Haraldur Noregskonungur kom fram í norska sjónvarpinu fyrir stundu og beindi orðum sínum til árásarmannanna á stjórnarráðsbygginguna í dag. Hann sagði að þeir gætu ekki skaðað Norðmenn og þeir yrðu dregnir til ábyrgðar. Lýðræðishugsunin í Noregi yrði sterkari í landinu eftir þær hræðilegu árásir sem Norsk þjóð hefði orðið fyrir í dag.Í sama streng tók Jens Stoltenberg forsætisráðherra á blaðamannafundi í kvöld en hann sagði jafnframt að Norðmenn yrðu ekki sprengdir upp til þöggunar og hvatti þjóð sína til að standa saman og hjálpast að við þessar erfiðu aðstæður.
Stoltenberg er nú staddur á Akershus-sjúkrahúsinu og heimsækir stórslasaða starfsmenn sína úr forsætisráðuneytinu sem eru á annan tug manns en staðfest er að 7 hafa fundist látnir. Margra er enn saknað þar sem byggingin er gjöreyðilögð eftir sprenginguna og björgunarmenn eiga í miklum erfiðleikum með að fara inn á efstu hæðir hússins og því ekki vitað um afdrif margra starfsmanna.
Enn er verið að leita að ungmennum sem voru við fundarhöld í Útey í dag þegar byssumaður,klæddur sem lögreglumaður, lét til skarar skríða og skaut á ungmennin. Fjölmargir unglingar gripu til þess ráðs að stökkva í sjóinn og ætluðu sér að synda til lands en sjórinn var kaldur og nú vinna kafarar við það að leita að líkum ungmennana sem náðu ekki til báts eða lands. Byssumaðurinn er 32 ára Norðmaður og sagði lögreglustjórinn í Osló að hann virtist samvinnuþýður en það væri nokkuð ljóst að hann tengdist sprengjuárásinni í stjórnarráðsbyggingunni þar sem gögn sem fundust á honum hafi strax sannað að hann var viðriðinn sprengjuárásina.
 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

argaiv1665

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso