|
Markaðurinn verður að huga að nýjum orkugjöfum |
|
Miðvikudagur, 07. september 2011 10:47 |
|
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að 21 öldin verði öld nýrra orkugjafa. Þetta kom fram á málþingi um vistvæna kosti í samgöngumálum sem haldið var á Reyðarfirði fyrir skemmstu. Í máli Katrínar kom fram að það væri skylda stjórnvalda að auðvelda nýjum orkugjöfum að festa sig í sessi þannig að hér á landi verði nokkurskonar græn bylting. Katrín telur að einkafyrirtæki og aðrir markaðsaðilar eigi að koma fram með græna kosti í orkugjafamálum en það sé ekki ríkissins að ákveða hvaða orkugjafar verða í boði í framtíðinni, því eigi einkamarkaðurinn að ráða.
|