|
Morgunútvarpið: Fyrstir á fætur |
|
Morgunútvarp Útvarps Sögu sem verið hefur á dagskrá stöðvarinnar síðustu ár tekur nokkrum breytingum næstkomandi mánudag því þá ætla morgunútvarpsmennirnir Markús, Elli og Jói að vera fyrstir allra morgunhana á fætur á morgnana og byrja útsendingar kl 06:40. Að sögn Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra mun þessi nýi tími morgunútvarpsins koma til móts við hlustendur Útvarps Sögu sem vilja fá að vita um atburði líðandi stundar fyrr en hlustendur annara útvarpsstöðva. Með þessu skrefi verður Útvarp Saga fyrst allra útvarpsstöðva á landinu til þess að hefja morgunútvarp svo snemma dags.
|