| Breskur lögreglumaður handtekinn |
| Þriðjudagur, 18. október 2011 06:58 |
|
Breskur lögreglumaður var í gærkvöld handtekinn vegna gruns um að hann eigi þátt í dauða breskrar lögreglukonu ,en lík konunnar fannst að morgni sunnudags. Svo virðist sem líkinu hafi verið komið haganlega fyrir í skógarrjóðri og tilraun gerð til þess að fela það með trjágreinum og sinu. Talið er að maðurinn og konan hafi hist síðastliðið laugardagskvöld en þau eru fyrrum sambýlisfólk. Maðurinn verður yfirheyrður í dag.
|