| Unglingapartý fór úr böndunum á Suðurnesjum |
| Föstudagur, 04. nóvember 2011 07:52 |
|
Lögreglan á Suðurnesjum var í gærkvöld kölluð að veislusal í Reykjanesbæ en þar voru unglingar með partý sem hafði farið úr böndunum. Að sögn lögreglu voru unglingarnir mjög ölvaðir og með ólæti en þó voru engin slagsmál. Lögreglan ákvað að partýi unglinganna skyldi ljúka og kom unglingunum úr húsinu og til síns heims. Einhverjir urðu þó ósáttir við afskipti lögreglu en létu sér þó segjast að lokum.
|