Ströndum í Perú lokað vegna dýradauða
Miðvikudagur, 09. maí 2012 09:38
Strendur í norðurhluta Perú hafa verið skilgreindar sem bannsvæði og hefur verið lokað vegna óútskýrðs dýradauða á svæðinu. Allt að eitt þúsund höfrungar og fjögurþúsund fuglar auk mikils fjölda risakolkrabba hafa fundist dauðir á svæði sem er um tvöhundruð kílómetrar að lengd. Fyrstu dýrin fundust dauð í mars síðastliðnum, en þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir hefur vísindamönnum ekki enn tekist að varpa ljósi á hvað olli dauða dýranna. Yfirvöld hafa lokað svæðið af og bannað alla umferð á og við svæðið. Umferð hefur einnig verið takmörkuð um önnur svæði í öðrum hlutum Perú og hafa yfirvöld varað almenning við að baða sig á ströndum þar til útskýringar hafa fundist á dauða dýranna en nú þegar hefur verið útilokað að um mengun sé að ræða. Yfirvöld í Perú hafa gefið út að vísindamenn telji að um einhvers konar veiru sé að ræða og á meðan ekki sé vitað hvað sé á ferðinni sé öruggast að taka enga áhættu. Vísindamenn vinna nú hörðum höndum að greiningu sýna úr dýrunum.
 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

generic tadalafilbuy cialis jelly canadian viagra cialis black
argaiv1936

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso