Mikill fjöldi skorar á forsætisráðherra
Fimmtudagur, 24. maí 2012 08:48
Vel á fjórða þúsund manns hafa nú ritað undir áskorun á netinu þar sem skorað er á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að rjúfa þing og boða til kosninga. Á síðunni stendur meðal annars: " Við undirrituð lýsum yfir vantrausti á ríkisstjórn Íslands. Við krefjumst þess að þing verði rofið og boðað verði til alþingiskosninga í samræmi við gildandi stjórnarskrá. Í samræmi við ákvæði stjórnarskrár skorum við á forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur, að ganga til fundar við forseta Íslands og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt eigi síðar en tveimur vikum eftir afhendingu þessarar áskorunar. Verði forsætisráðherra ekki við áskorun okkar um að biðjast lausnar skorum við á forseta Íslands að rjúfa þing og boða til kosninga í samræmi við 24. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands." . Þá kemur fram í tölvupósti frá forsvarsmönnum síðunnar að þingmönnum hafi verið sent erindi í tilefni opnunnar síðunnar en erindið er svohljóðandi: " Þetta bréf hefur þú fengið í hendur þar sem þú ert einn af þingmönnum þjóðarinnar. Þar sem þú ert lýðræðislega kjörinn fulltrúi þjóðarinnar og starfar í umboði almennings í landinu er leitað til þín. Það getur ekki hafa farið fram hjá þér að ríkisstjórn landsins nýtur ekki trausts nema mjög lítils hluta almennings í dag. Segja má að niðurstöður skoðanakannana undanfarið sýni að traust þjóðarinnar til þings í heild sé í sögulegu lágmarki. Undirritaðar hafa fyrir hönd aðgerðarhóps, sem þær tilheyra, tekið að sér að upplýsa þig, ásamt aðra þingmenn og ráðherra um að farið verður af stað með söfnun undirskrifta um vantraust á ríkisstjórn Íslands ásamt áskorun til forsætisráðherra en að öðrum kosti forseta Íslands um að rjúfa þing og boða til alþingiskosninga.". Ekki kemur fram hvenær undirskriftarlistarnir verða afhentir forseta eða forsætisráðherra en búast má við því að söfnun undirskrifta muni standa yfir í að minnsta kosti einhverjar vikur.
 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

For Burkitt s tumor in Stages I-II: to mg orally once a day for to days Malignant lymphoma in Stage III: buy brand cialis. Cialis tadalafil: I& m in my early & s and found myself single again after a period of marriage and anxious when it arrived at being with new women, wasn& t getting as hard and was irraticmedication that benefits millions of patients generic cialis online.
argaiv1249

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso