Myndbirting: Gunnar fékk að valsa um óáreittur á fósturheimili
Miðvikudagur, 06. júní 2012 14:00

 

tadalafil tabletsbuy cialis 10mg viagra 2013 cialis reviews
argaiv1610

Dæmdur barnaníðingur Roy Svanur Shannon, sem í dag heitir Gunnar Jakobsson fékk að valsa um óáreittur á fósturheimili á Stokkseyri sem er á vegum barnaverndaryfirvalda í að minnsta kosti hálft ár eftir að lögreglu og barnaverndaryfirvöldum var tilkynnt um að hann væri að áreita barnungar stúlkur.  Málavextir voru þeir að tvær stúlkur voru á gangi á Stokkseyri og segja þær Gunnar hafa áreitt sig og elt. Að sögn heimildarmanns fréttastofu reyndu stúlkurnar að fara krókaleiðir til þess að losna undan ágangi Gunnars en hann hafi elt þær, þar til þær hafi komist á heimili annarar þeirra og greindi ein stúlkan sem þá var 11 ára þáverandi stjúpföður sínum frá atvikinu sem hafði upp á því hvar maðurinn væri búsettur. Stjúpfaðir stúlkunnar komst á snoðir um að Gunnar byggi í húsnæði sem væri í eigu dvalarheimilisins Kumbaravogs og hafði faðir stúlkunnar í framhaldinu samband við forstjóra dvalarheimilisins sem staðfesti að dæmdur barnaníðingur byggi í húsnæði í eigu dvalarheimilisins. Einnig greindi forstjóri dvalarheimilisins stjúpföður stúlkunnar frá því að Gunnar Jakobsson væri tíður gestur á fósturheimili á vegum barnaverndaryfirvalda og það væri til marks um að hann væri ekki skaðlegur börnum.

 

Samkvæmt framburði bæjarbúa urðu þeir varir við að Gunnar væri stundum einn með börnum á fósturheimilinu þegar fósturforeldrarnir voru að heiman. Í framhaldinu af símtali stjúpföðurins og forstjóra Kumbaravogs hafði stjúpfaðir stúlkunnar samband við lögreglu og tilkynnti honum um áreitni Gunnars í garð dóttur hans og vinkonu hennar auk þess sem hann lét lögreglu vita af ferðum hans inn á fósturheimilið. Stjúpfaðirinn fyrrverandi sagði í samtali við fréttastofu að hann væri afar undrandi að ekkert hafi verið gert fyrr en hálfu ári eftir að hann tilkynnti málið til lögreglu.

 

Gunnar var í apríl árið 1997 dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex barnungum stúlkum og var það þyngsti dómur sem hafði fallið í barnaníðingsmáli hérlendis á þeim tíma en hann var einnig fundinn sekur um að hafa gífurlegt magn af barnaklámi undir höndum. Þá var Gunnar sakfelldur fyrir að hafa framleitt og deilt barnaklámi á vefnum en meðal þess sem kemur fram í dómi Héraðsdómi Norðurlands eystra er að Gunnar hafði tekið sum brota sinna upp á myndbandsupptökuvél. Við rannsókn málsins var eldra mál gegn Gunnari tekið upp en það mál má rekja til ársins 1991 en þá átti Gunnar að hafa áreitt barnungar stúlkur kynferðislega í sumarhúsi í Húsafelli. Það mál var kært árið 1992 en var fellt niður 1994. Eftir að hafa setið af sér dóminn breytti maðurinn sem þá hét Roy Svanur Shannon nafninu sínu í Gunnar Jakobsson og flutti til Danmerkur. Þar dvaldi Gunnar í nokkur ár en sjá má á myndasíðu Gunnars að þar hefur hann umgengist barnungar stúlkur og er í myndasafni hans að finna vafasamar myndir af ungum stúlkum sem teknar eru í Danmörku en ekki er hægt að sjá hvernig Gunnar tengist stúlkunum. Þá er einnig að finna þar myndbönd af ungum stúlkum. Barnaverndaryfirvöld hafa ekki enn tekið ákvörðun um hvort börn verði send á fósturheimilið eftir að málið komst upp í síðustu viku en umsjónarmaður fósturbarna á heimilinu tengist Gunnari fjölskylduböndum.

 

 

Gunnar sagði í samtali við fréttastofu að ásakanir sem á hann eru bornar um að hann hafi áreitt og elt stúlkur á Stokkseyri eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Þegar hann er spurður út í myndir af ungum stúlkum í myndaalbúmi á myndasíðu hans á netinu segist hann ekki muna eftir myndunum og ber því við að tölvan hans væri búin að vera biluð svo hann gæti ekki komist í að skoða myndaalbúmin. Gunnar segir að ástæður komu hans á fósturheimilið hafi verið þær að hann hafi verið að aðstoða konu á heimilinu við húsverk en segist aldrei hafa snert börn á heimilinu. Þó segir hann frá einni stúlku sem kom oft í helgardvöl á heimilið en hún hafi skyndilega hætt að koma þangað til dvalar og hvorki hann né fósturforeldrarnir viti hver ástæðan fyrir því sé. Hann útilokar þó ekki að ástæðan gæti verið sú að hann hafi " gert eða sagt eitthvað ". Gunnar telur þó að ástæðan sé sú að móðir stúlkunnar hafi hugsanlega komist að forsögu Gunnars og því hætt að senda hana á heimilið. Gunnar flutti til Íslands eftir að hafa búið í nokkur ár í Danmörku og hefur búið á Stokkseyri um hríð.

 

Gunnar segist enn búa á Stokkseyri og þar hafi hann það mjög gott, en síðar í símtalinu segir Gunnar " Ef einhver myndi rétta mér 500 þúsund kall þá væri ég farinn úr landi, sko helst í gær". Gunnar sagði að eigin frumkvæði í samtali við fréttastofu að hann væri haldinn barnagirnd og aðspurður um hvort hann hafi haft kynferðislegar langanir til barna á fósturheimilinu má skilja á dæmisögu sem hann setti fram að svo hafi verið en segist þó ekki hafa gert börnum á heimilinu mein. Hann segir að það hafi verið hugsunarleysi af hans hálfu og af hálfu fósturforeldrana að hann hafi vanið komur sínar á fósturheimilið og segir að honum dytti ekki í hug að fara þangað aftur " Svona lagað magnast alltaf upp" Segir Gunnar.

 

 

Hér fyrir neðan má hlusta á viðtal sem tekið var við Gunnar við vinnslu fréttarinnar


 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso