|
Hægri grænir skamma Lilju og stjórnvöld |
|
Föstudagur, 08. júní 2012 17:22 |

Stjórnmálaflokkurinn Hægri Grænir hefur sent frá sér ályktun þar sem setning svokallaðara "Árna Pálslaga" er harðlega gagnrýnd. Yfirlýsingin er eftirfarandi: "Hægri grænir, flokkur fólksins harmar aðför stjórnvalda og alþingismannsins Lilju Mósesdóttur, formanni stjórnmálahreyfingarinnar Samstöðu gegn heimilunum og fólkinu í landinu með setningu laga nr. 151/2010, svokallaðra „Árna Pálslaga“. Alþingismaðurinn Lilja Mósesdóttir sagði Já í annarri atkvæðagreiðslu og var þægilega fjarverandi í þriðju og síðustu atkvæðagreiðslu um aðförina að heimilunum. Með lagasetningunni tóku stjórnvöld og alþingismaðurinn Lilja Mósesdóttir sér stöðu með erlendum vogunarsjóðum gegn fólkinu og fyrirtækjum í landinu, og er þetta í fyrsta skipti í lýðveldissögunni sem slík afturvirk lög hafa verið sett. „Árna Pálslögin“ hafa seinkað uppgjöri 60.000 einstaklinga og fyrirtækja um endurgreiðslu ólöglegra gengislána um eitt og hálft ár og lítur út fyrir að uppgjör dragist um nokkur misseri í viðbót. Fjölmargir umsagnaraðilar gerðu athugasemd við „Árna Pálslögin“, en samt var vaðið áfram."
|
Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.
argaiv1646