|
Fjórir grunaðir um ölvun við akstur |
|
Þriðjudagur, 12. júní 2012 08:21 |
|
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjóra ökumenn í nótt vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis. Sá fyrsti var stöðvaður á Miklubrautinni um miðnættis og svo annar ökumaðurinn rétt um eittleytið á Hafnarfjarðarveginum. Þá var þriðji ökumaðurinn tekinn á Sogaveginum og svo var sá fjórði stöðvaður á Reykjanesbraut. Allir ökumennirnir voru færðir til sýna og skýrslutöku og var sleppt að því loknu en lögreglan hélt bíllyklum þeirra eftir af eðlilegum ástæðum.
|