|
Refir valda usla í kríuvarpi |
|
Þriðjudagur, 12. júní 2012 08:30 |
|
Tófur sem gengu í kríuvarpi í Grindavík á dögunum spilltu varpi og átu fjölda eggja áður en þær voru skotnar, en alls voru ellefu tófur skotnar í varpinu. Talið er að allt að sexhundruð hreiður séu í varpinu og því gríðarlega mikilvægt að halda vargi í skefjum á svæðinu. Fyrir utan tófuna er minkurinn skæður sem og mávar sem eiga það til að taka lifandi unga sem geta illa varist. Taldir hafa verið mest um 30 ungar í maga eins fugls sem skotinn var á höfuðborgarsvæðinu fyrir nokkrum árum og því ljóst að fuglavargurinn geti slagað hátt upp í tófuna hvað ungadráp varðar.
|