Myndbirting: Sigurður dæmdur fyrir barnaníð í Svíþjóð
Þriðjudagur, 12. júní 2012 09:25
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri, Sigurður Adolfsson var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi í Svíþjóð á dögunum fyrir kynferðisbrot gagnvart barnungri stúlku en brotin áttu sér stað á árunum 2007- 2011. Sigurður braut fyrst gagnvart stúlkunni þegar hún var 10 ára gömul en hún er nú á 15 ári. Sigurði var gefið að sök að hafa áreitt stúlkuna kynferðislega og var að auki ákærður fyrir nauðgun en var sýknaður af nauðgunarákærunni. Stúlkan lagði sjálf fram kæru á hendur Sigurði fyrir nauðgun en hún greindi frá því við skýrslutökur að maðurinn hefði nauðgað henni bæði á Íslandi og í Svíþjóð en Sigurður hefur verið búsettur þar í nokkur ár. Sigurður viðurkenndi við yfirheyrslur og við réttarhöldin að hafa áreitt stúlkuna og hafa snert hana á kynferðislegan hátt en neitaði ávallt að hafa nauðgað stúlkunni. Sigurður var handtekinn um síðastliðna páska og var í gæsluvarðhaldi fram undir miðjan maí. Eins og fyrr segir var Sigurður Adolfsson dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir brot sín og þarf að auki að greiða stúlkunni 130,000 sænskar krónur í miskabætur.
 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

drugstore onlinebuy cialis online buy viagra jelly online cialis black
argaiv1759

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso