|
Nýtt eiturlyf veldur mannáti |
|
Nýtt stórhættulegt eiturlyf sem nefnt hefur verið Cloude Nine veldur lögregluyfirvöldum í Bandaríkjunum miklum áhyggjum þar sem dópið veldur svo ofsakenndum persónubreytingum að nú þegar eru þrjú þekkt dæmi um mannát í tengslum við notkun efnisins. Á dögunum fékk lögreglan tilkynningu um að sturlaður maður hafði étið um helming af andliti heimilislauss manns. Reynt var að stöðva manninn en þá tók maðurinn sig til og urraði að lögreglumönnum og reyndi að bíta þá og skutu þá lögreglumennirnir þá manninn til bana. Við krufningu kom í ljós að maðurinn var undir áhrifum Cloud Nine. Þá eru tvö önnur mannátstilfelli talin tengjast neyslu efnisins.
|
Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.
argaiv1016