|
Karlmaður reyndi að smygla merði með sér til landins með Norrænu þegar skipið kom til landsins 5. júní. Samkvæmt upplýsingum mun maðurinn hafa verið stöðvaður við tollskoðun þar sem í ljós kom að hann var með marðardýr meðgerðis. Maðurinn vildi ekki láta dýrið af hendi og vildi frekar fara til baka með skipinu ásamt dýrinu sem hann fékk kost á að gera. Maðurinn sást svo fara í land og þá var hann með dýrið í farteskinu. Gerð var svo leit að manninum og fannst hann eftir stutta leit. Dýrið fannst þó ekki og er enn allt á huldu um hvar það er niðurkomið.
|
Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.
argaiv1699