|
Unglingspiltur játaði íkveikju í Eyjum |
|
Þriðjudagur, 26. júní 2012 09:41 |
|
Fjórtán ára piltur hefur játað að hafa lagt eld að tveimur bifreiðum sem stóðu við trésmíðaverkstæði í Vestmannaeyjum í fyrrinótt. Litlu mátti muna að eldur bærist inn í trésmíðaverkstæðið en til marks um það sprakk rúða í húsinu vegna hitans frá eldinum. Pilturinn játaði einnig að hafa deytt fiska sem voru í fiskabúri utandyra á torgi bæjarins en ekki er vitað hvað unga manninum gekk til með hegðun sinni. Mál drengsins verður væntalega sent barnaverndaryfirvöldum.
|