|
Hættuástand skapaðist í Vesturbæjarlaug |
|
Fimmtudagur, 28. júní 2012 10:32 |
|
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í gærkvöld eftir að mannleg mistök urðu til þess að klór og einhvers konar hreinsiefni hafði blandast saman í tank og eiturgufur náðu að myndast. Slökkviliðsmenn fóru með þar til gerða mæla og mældu ástand loftsins í því rými sem tankarnir eru staðsettir og sýndu mælingar að eitraðar gufur voru í rýminu og því var ákveðið að dæla innihaldi tankanna úr þeim og lofta út. Enginn varð þó fyrir eitrun vegna slyssins en laugin var rýmd um leið og mistakanna varð vart.
|
Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.
argaiv1310