|
Telja að ísbjörninn hafi verið Árni Björn |
|
Þriðjudagur, 10. júlí 2012 09:39 |
|
Hjón sem sigldu kajak á Vatnsnesi í fyrir nokkru telja að spor sem talin voru eftir hvítabjörn og fundust í fjörunni við bæinn Geitafell hafi í raun ekki verið spor eftir hvítabjörn heldur hafi þau verið eftir hjónin þar sem þau áðu í fjörunni á ferð sinni á kajaknum og þar með gæti skýringin á því hvers vegna sporin lágu úr sjó og svo aftur ofan í sjó verið fundin. Hjónin heita Árni Björn Stefánsson og Gunnhildur Stefánsdóttir og segjast þau hafa sannfærst enn frekar þegar þau sáu myndkeið í fréttatíma sjónvarps og telja þau öruggt að um sömu fjöru væri að ræða þar sem þau höfðu farið í land um stund. Eiginkona Árna hefur að gamni sínu sagt í tilefninu að sporin hafi því ekki verið eftir ísbjörn, heldur Árna Björn.
|