|
Svona munu spurningar á kjörseðli um tillögur stjórnlagaráðs líta út |
|
Fimmtudagur, 19. júlí 2012 09:53 |
|
Í komandi kosningum um tillögur stjórnlagaráðs verða kjósendur spurðir sex spurninga sem svara á með því að merkja í reit með krossi ýmist já eða nei eftir vilja kjósandans. Spurningarnar verða eftirfarandi: argaiv1907
1) Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá? Já. Ég vil að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Nei. Ég vil ekki að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. 2) Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðareign? 3) Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi? 4) Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til alþingis heimilað í meira mæli en nú er? 5) Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt? 6) Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningabærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu?
|
Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.