Ferðamenn ganga of nærri Surtarbrandsgili
Mánudagur, 27. ágúst 2012 09:22
 Aukinn ágangur ferðamanna um Surtarbrandsgil í Vatnsfirði hefur orðið til þess að umsjónarmenn á svæðinu eru farnir að hafa verulegar áhyggjur af steingerfingum sem finnast á svæðinu en Surtarbrandsgil er friðlýst náttúruvætti. Til þess að draga úr hættu á skemmdum á viðkvæmu svæðinu hafa reglur um umgengni á svæðinu verið hertar til muna en meðal þess sem gert hefur verið er að svæði hafa verið girt af og fá ferðamenn aðeins að fara á svæðið í fylgd landvarðar. Þá hefur verið komið upp sérstökum fræðsluskiltum sem ætlað er að fræða ferðamenn um hvers vegna mikilvægt sé að vernda náttúruminjarnar. Svo virðist sem ferðamenn haf almennt tekið breytingunum vel og hefur ekki dregið úr aðsókn á svæðinu þrátt fyrir hertari reglur.
 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

cialis generic vs brandcialis reviews buy brand viagra buy cialis jelly
argaiv1902

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso