|
Huang Nubo segir að skrifað verði undir samning fljótlega |
|
Föstudagur, 21. september 2012 08:24 |
|
Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo segir að skrifað verði undir leigusamning vegna jarðarinnar Grímsstaða á Fjöllum í næsta mánuði og í framhaldinu verði boðað til blaðamannafundar. Steingrímur J Sigfússon sagist í fréttum RÚV í gærkvöld ekki kannast við að leigusamningurinn væri í höfn og að ráðherranefnd væri enn að fara yfir málið en því ótímabært að koma með yfirlýsingar um málið. Steingrímur sagðist vera orðinn þreyttur á stórum yfirlýsingum Kínverska fjárfestisins í Kínverskum fjölmiðlum sem væru einungis til þess fallnar að flækja málin.
|