Velferðakerfið á villigötum

 Mynd: Gettyimages
Velferðakerfið virkar alls ekki eins og það á að gera, ekki síst gagnvart þeim sem minna mega sín segir Þórhallur Heimsson prestur en hann var gestur morgunþætti Útvarps Sögu í morgun. Hann segir ríkisvaldið ætlast til þess að neyðarstofnanir, líkt og Rauði krossinn, sjái um að brauðfæða fólk sem á í fjárhagslegum vanda. Svo þegar þessum stofnunum er lokað vegna sumarleyfa komi ekkert í staðinn og fólkið sent út á Guð og gaddinn matarlaust og allslaust. Það sé varla hægt að tala um velferðarsamfélag sem virkar þegar svona háttar til. Þórhallur bendir á að nú þegar séu hálparbeiðnir frá foreldrum vegna skólabyrjunarinnar í haust farnar að berast prestum kirkjunnar og að áhyggjur foreldra vegna kostnaðar við skólabyrjunina séu miklar
argaiv1593

 

Því miður getur þú ekki sent athugasemdir við fréttina. Einungis innskráðir notendur geta gert athugasemdir við greinar. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Útvarps Sögu í síma 533-3943 og fáðu skýringu og leiðréttingu ef ranglega hefur verið lokað á athugasemdir frá þér eða þú getur ekki skráð þig inn.

Útvarp Saga Nóatún 17, 105 Reykjavík Auglýsingasími: 533 3943 Útsendingarsími: 588 1994 Netfang: saga@utvarpsaga.is
megasesso