Fyrrum forseti, Donald Trump, hefur brugðist við áframhaldandi banni Facebook og segir, að stóru tæknifyrirtækin vinni að ritskoðun Bandaríkjamanna.
„Það sem Facebook, Twitter og Google hafa gert er algjör svívirðing og til skammar fyrir land okkar. Málfrelsið hefur verið tekið af forseta Bandaríkjanna vegna þess að róttæku vinstrimennirnir eru hræddir við sannleikann en sannleikurinn mun koma í ljós hvort sem er, stærri og sterkari en nokkru sinni fyrr“ sagði Trump í yfirlýsingu 5. maí eftir að eftirlitsstjórn Facebook ákvað að framlengja varanlega bann samfélagsmiðilsins á fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.
Stjórn Facebook lagði hins vegar til, að bann Trumps væri ekki varanlegt og fannst ótímabundið bann Facebook óviðeigandi. Það bað því fyrirtækið Menlo Park í Kaliforníu að yfirfara ákvörðunina og koma með „hlutfallslegt svar“ í samræmi við reglur Facebook.
Eftirlitsstjórn Facebook gerði grein fyrir rökstuðningi sínum með fullyrðingu um að Trump „skapaði umhverfi þar sem alvarleg hætta á ofbeldi væri möguleg.“ Donald Trump skrifaði:
„Fólkið í landinu okkar mun ekki taka afstöðu með netrisunum! Þessi spilltu félagslegu fjölmiðlafyrirtæki verða að greiða pólitískt verð og mega aldrei aftur fá að eyðileggja og niðurlægja kosningaferlið okkar.“
Ritskoðun netrisanna vekur reiði fleiri en íhaldsmanna
Fjármálastjóri Twitter, Ned Segal, sagði 4. maí að Twitter – þar sem Trump hafði um 90 milljónir fylgjenda – myndi banna fyrrverandi forseta til frambúðar. Segal sagði „Engar breytingar eru á stefnu Twitter varðandi Trump. Við höfum ekki svona eftirlitsstjórn [eins og Facebook]. Teymi okkar ber ábyrgð á ákvörðunum sem við tökum. Það eru engar breytingar á neinu sem við höfum rætt um áður.“
Útilokun Donald Trumps frá Twitter, Facebook, Amazon og Google hefur vakið reiði íhaldsmanna, talsmanna málfrelsis og nokkurra stjórnmálaleiðtoga heims eins og Andrés Manuel López Obrador, forseta Mexíkó, og Angela Merkel, kanslara Þýskalands.
„Mér líkar ekki að neinn sé ritskoðaður eða rétturinn tekinn af neinum til að senda skilaboð á Twitter eða á Facebook. Ég er ósammála því, ég sætti mig ekki við það“ sagði López Obrador í byrjun janúar. Hann hélt því fram að samfélagsmiðlar hefðu víkkað valdsvið til að stjórna umræðunni.
„Hvernig getur þú ritskoðað einhvern: Látum okkur sjá, ég, sem dómari hins heilaga rannsóknarréttar, mun refsa þér vegna þess að mér finnst það, sem þú segir vera skaðlegt. Hvar eru lögin, hvar er reglurnar, hver eru viðmiðin? Þetta er mál stjórnvalda, þetta er ekki mál fyrir einkafyrirtæki.“
Sjá nánar hér