Könnun: Íslendingar eiga ekki að innleiða 5G í andstöðu við Bandaríkjamenn

5G Telecommunication tower antenna in morning sky Evening sky

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að 5G fjarskiptakerfið verði innleitt hér á landi í andstöðu við Bandaríkjamenn.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefnum á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Eiga Íslendingar að innleiða 5G þrátt fyrir andstöðu Bandaríkjanna?

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 70,7%

Já 23,9%

Hlutlaus 5,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila