Íslensk stjórnvöld geta framvegis tekið þátt í sameiginlegum innkaupum Evrópuríkja á læknisfræðilegum viðbúnaðarvörum, eftir að Ísland undirritaði í gær sérstakan samning þar að lútandi. Í samningnum felst að aðildarríki samningsins geta staðið saman að innkaupum á lækningabúnaði, lyfjum, vöru og þjónustu sem nauðsynleg eru hverju sinni og geta þannig fengið hagstæðari kjör og skjótari afgreiðslu. Nær öll aðildarríki Evrópusambandsins, auk Bretlands standa aðsamningnum og Noregur gerðist aðili í síðustu viku.
Samstillt átak og hröð afgreiðsla
„Fyrir tæpri viku óskaði ég eftir því við utanríkisráðuneytið að það hlutaðist til um að Ísland gengi inn í samning um þessi innkaup. Þetta er mjög mikilvægur liður í því að tryggja landsmönnum örugga heilbrigðisþjónustu og stöðugleika í heilbrigðiskerfinu. Það er því stór áfangi fyrir okkur öll að þetta mál sé komið í höfn“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Samningsferlinu lauk með því að samningurinn var undirritaður í Brussel í gær, en öll nauðsynleg skjöl og umboð voru send og undirrituð með rafrænum hætti, vegna útgöngu- og ferðatakmarkana í Belgíu.
Mikilvægur samningur til að tryggja nauðsynleg aðföng
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir að með samstilltu átaki stjórnvalda hafi tekist á örskömmum tíma að tryggja aðild Íslands að samningnum. „Þátttaka í sameiginlegum innkaupum aðildarríkja samningsins hvað varðar nauðsynleg aðföng fyrir heilbrigðisþjónustu getur skipt sköpum þegar slík vá er fyrir dyrum. Þess vegna lögðum við áherslu á að hægt yrði að ganga frá aðild Íslands hratt og vel,“ segir Guðlaugur Þór.