Eftir hrottalegt morð á franska kennaranum Samuel Paty í París s.l. föstudag streyma nú „heillaóskaskeyti“ frá íslömskum hryðjuverkamönnum til facebook síðu arabíska sjónvarpsins Al Jazeera. Svipuð ummæli hafa einnig verið send til France24. Er hinn ungi morðingi Abdulak Anzorov hylltur sem hetja og aðrir gagnrýnendur íslam varaðir við að fara sömu leið og Samuel Paty ef þeir láta ekki af gagnrýni sinni. Sænski miðilinn Samhällsnytt tók saman nokkur sýnishorn til að sýna hatur öfgamanna sem vilja fremja mannvíg í nafni Allah og nota facebook til að eiga samskipti hver við aðra og breiða út hatursboðskapinn (sjá fyrir neðan).
Aukin öfgafull róttækni hjá yngri múslímum
Rannsóknir í Frakklandi sýna að aðskilnaður hópa er mikill og hugmyndir um eigið samfélag og lög við hlið þess franska við lýði hjá sífellt stærri hópi. T.d. hefur franski félagsfræðingurinn Olivier Galland varað við aukinni róttæknivæðingu í Evrópu sérstaklega hjá yngri múslímum. Eftir hryðjuverkið í París ár 2015 athugaði Galland ástandið hjá 7 þúsund múslímum í 4 mismunandi svæðum í Frakklandi og töldu yfir 20% aðspurðra að trúarlegt ofbeldi væri réttlætanlegt. Í nokkrum skólum höfðu yfir 40% múslímskra nemenda mjög róttæka afstöðu til trúarinnar. Galland hefur gagnrýnt marga sérfræðinga í Evrópu fyrir barnalega afstöðu sem segja róttæknina stafa af erfiðum félagsaðstæðum eins og fátækt. Segir Galland ekki hægt að einfalda vandann með slíkum skýringum. Burtséð frá bakgrunni, efnahag, afstöðu til lífsins og hvar í landinu sem múslímsku nemendurnir áttu heima þá var róttæknin meira hjá þeim en öðrum. Segir Galland skýringuna á þeim mismun vera afleiðingar af trú á íslam.
Skýrsla sænska Varnarmálaháskólans varar við þróuninni í Svíþjóð
Varnarmálaháskólinn birti fyrir tveimur árum skýrsluna „Á milli salafismans og salafíska heilaga stríðsins – áhrif og áskoranir fyrir sænska samfélagið.“ Þar er slegið föstu að bókstafstrúaráhrif innan íslam verði sífellt útbreiddari í Svíþjóð. Þar er sagt frá framvaxandi heilagastríðs – salafistísku umhverfi á fjölmörgum stöðum í Svíþjóð og bent t.d. á Gautaborg og einnig greint frá hvernig yfirvöld upplifa áhrif heilagastríðsstefnu salafista í borgum eins og Halmstad, Stokkhólmi, Gautaborg, Borås og Västerås. Hryðjuverkasérfræðingurinn Magnus Ramstorp segir að „vissir salafískir hópar nota félagsmiðla, fyrirlestra predikanta og samstarf við erlend samtök til að dreifa boðskap sínum.“