Afleiðingar Covid aðgerða verri og víðtækari en þær sem hlutust af faraldrinum

Þær aðgerðir sem farið var í á heimsvísu voru verri og munu hafa víðtækari áhrif heldur en faraldurinn. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Þorsteins Siglaugssonar hagfræðings í þættinum Í leit að sannleikanum í dag en hann var gestur Arnars Þórs Jónssonar.

Þorsteinn segir afleiðingarnar þegar vera farnar að sjást en séu alls ekki komnar fram af fullum þunga. Hann bendir meðal annars á að dauðsföllum hefur fjölgað í kjölfar faraldursins og það megi rekja til þess að allri athygli heilbrigðiskerfanna hafi verið beint að Covid og allt annað látið sitja á hakanum, þannig hafi langveikir sjúklingar eins og til dæmis þeir sem hafi verið með krabbamein og aðra lífsógnandi sjúkdóma hreinlega verið settir á bið og nú komi sú bið meðal annars fram í fjölgun dauðsfalla.

Þá séu áhrifin margþætt og taki til nánast allra þátta daglegs lífs, þannig hafi áhrifin verið heilsufarsleg, efnahagsleg, félagsleg og stjórnmálaleg.

Fólk hafi meðal annars einangrast í faraldrinum vegna sóttvarnaaðgerða yfirvalda sem hafi ýtt undir einmanaleika og þunglyndi, fjölmargir hafi verið misst störf sín eða tekjur þeirra hafi verið skertar með tilheyrandi áhrifum á þá einstaklinga og fjölskyldur sem það hafi þurft að þola. Þá hafi fjölmiðlar flestir dansað eftir ákveðinni ríkislínu og borið gagnrýnislaust út lýsingar sem heilbrigðisyfirvöld ríkja, lyfjarisar og samfélagsmiðlar settu fram í faraldrinum, meðal annars hvað varðar virkni þeirra efna sem notuð voru sem bólusetningarefni gegn Covid 19.

Óbólusettir þurftu að þola að vera jaðarsettir af hátt settu fólki, jafnvel af kjörnum fulltrúum og fólk niðurlægt fyrir það eitt að vilja ekki þiggja bólusetningu. Þá hafi yfirvöld víða um heim beitt óttastjórnun gegn almenningi og í stað þess að draga úr ótta hafi verið bætt í og aukið á óttann og gert meira úr hættunni af faraldrinum umfram það sem efni stóðu til.

Einnig hafi aðgerðir haft þau áhrif að ritskoðun samfélagmiðla hafi vaxið mjög og staðreyndir sem settar af hafi verið á samfélagsmiðla verið fjarlægðar gegn betri vitund, jafnvel þó þær hafi verið settar fram með vísan til vísindalegra rannsóknarniðurstaðna.

Ofan á allt þetta hafi fólki verið talið trú um að bóluefnin kæmu í veg fyrir smit sem reyndist rangt eins og komið hafi á daginn, auk þess sem rannsóknir hafa sýnt að endursmit séu tíðari meðal bólusettra. Þetta sé þvert á það sem yfirvöld hafi haldið fram og er eitt af þeim dæmum um rangfærslur sem sett hafi verið fram af opinberum aðilum.

Þorsteinn segir að vegna alls þess sem á undan sé gengið geti orðið mikið samfélagslegt umrót

„við sjáum bara efnahagsástandið og hvernig það er að þróast, við erum að sjá versnandi lífskjör fólks um allan heim, við erum að sjá stórfellda aukningu atvinnuleysis og þetta er þegar byrjað að gerast, það sem þarf til þess að fólk átti sig á hlutunum er að það finni þetta á eigin skinni og því stórtækari sem stjórnvöld hafa verið í að halda fram ósannindum og halda niðri aðgengi fólks að upplýsingum og blekkja fólk því alvarlegra verður umrótið“ segir Þorsteinn.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila