Ákall Carlo Maria Viganò erkibiskups til jarðarbúa: Sameinumst í Alþjóðabandalagi gegn glóbalismanum og frelsum mannkyn undan einræðisstjórn Endurræsingarinnar miklu

Carlo Maria Viganò erkibiskup flutti ákall á miðvikudaginn til kaþólskra, kristinna og trúaðs fólks um gjörvallan heim til að sameinast gegn myrkvaröflum glóbalismans. Viganò erkibiskup sendi The Gateway Pundit myndband sitt og Ákall til jarðarbúa um að stofna Bandalag gegn Glóbalismanum „Anti-Globalist Alliance.“

Útvarp Saga birtir hér boðskap þessa merka manns sem segir, að tíminn sé að renna út eigi jarðabúum að takast að sigrast á hinum myrku öflum, sem núna ráðast gegn mannkyni öllu og vilja hneppa fólk í þrælabönd. Hann varar við alþjóðlegri elítu, sem vill hneppa jarðarbúa í þrældóm og stuðla að „trúarbrögðum sem afneita trú á Krist.“ Erkibiskup Vigano kallar á einingu, hugrekki, styrk og trú. Carlo Maria Viganò erkibiskup var áður postullegur sendiboði til Bandaríkjanna. Útvarp Saga hefur snarað ákallinu lauslega úr ensku yfir á íslensku og ákallið má lesa hér að neðan á íslensku og einnig hlaða heim bæði á íslensku og ensku. Einnig er myndband neðst á síðunni með flutningi erkibiskupsins.

Hér er texti með ákalli Carlo Maria Viganò erkibiskups á íslensku

Hér er texti með ákalli Carlo Maria Viganò erkibiskups á ensku

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila