Vill að Alaskaleiðin verði farin á Íslandi – Það eiga ekki örfáir að eiga Ísland

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra.

Rétt væri að hér á landi væri farin sama leið og farin er í Alaska þegar kemur að því að nýta auðlindir landsins. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Jóns Baldvins Hannibalssonar í þættinum Heimsmálin, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar.

Jón segir Alaskaleiðina vera einfalda og mjög sanngjarna

hún virkar þannig að afrakstri olíulinda á svæðinu er safnað í sjóð og almenningur í Alaska, hvert einasta mannsbarn þar fær svo árlega útgreiddan arð úr sjóðnum og þetta eru umtalsverðar upphæðir eða sem nemur á þriðju milljón árlega„, segir Jón.

Hugmynd Jóns um að ísland ætti að fara Alaskaleiðina kviknaði þegar ég frétti af því að börn Samherjamanna hefðu fengið að gjöf frá foreldri sínu sameiginlega auðlind landsins

hvar á byggðu bóli hefði svona verið látið viðgangast, það á auðvitað að innkalla þennan kvóta tafarlaust og ekkert múður með það, svo ætti að úthluta þessu aftur á sanngjarnan hátt og fara svo Alaskaleiðina og þá fá allir að njóta þess arðs sem þjóðin á sameiginlega, ég held að það séu síðustu forvöð að grípa inn í núna því þeir eru orðnir svo ríkir að þeir gnæfa yfir allt þjóðfélagið“ segir Jón.

Þá gagnrýnir Jón sinnuleysi stjórnmálamanna í málinu harðlega “ ætlar enginn stjórnmálamaður, enginn stjórnmálaflokkur að stöðva þá ósvinnu að stöðva þetta arðrán gagnvart þjóðarauðlindinni? ætlar enginn að stöðva það að örfáir einstaklingar eignist þetta allt með klíkuvaldi stjórnmálanna„,segir Jón.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila