Allir skyldaðir í tvöfalda skimun á landamærunum frá og með deginum í dag

Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag en í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heim verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí. Þá verða tekin varfærin skref til afléttingar sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Fram kemur í tilkynningu að það sé mat sóttvarnalæknis að hætt sé við því að smit leki gegnum varnir á landamærum, einkum hjá þeim sem velja 14 daga sóttkví í stað sýnatöku. Það sé sérlega brýnt nú að stemma stigu við slíku vegna þeirrar fyrirsjáanlegu og afmörkuðu hættu sem stafar af nýju afbrigði veirunnar sem ítrekað hefur greinst hjá sýktum einstaklingum á landamærum.

Þá segir í tilkynningu að gjaldfrjáls skimun hafi ekki leitt til þess að fækkað hafi nægjanlega í hópi þeirra sem velja 14 daga sóttkví í stað skimunar. Því hefur Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ákveðið að setja reglugerð þar sem sýnataka verður gerð að skyldu. Ekki verður hægt að velja sóttkví í stað sýnatöku nema í algerum undantekningartilvikum, s.s. af læknisfræðilegum ástæðum.

Komufarþegar sem geta framvísað gildu vottorði sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin eru áfram undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum og það sama mun gilda um komufarþega sem geta framvísað gildu bólusetningarvottorði. 

Vonir standa til þess að á næstu mánuðum muni bólusetning smám saman draga úr þeirri hættu sem af faraldrinum stafar samhliða því sem sóttvarnaaðgerðum ríkja verður áfram beitt til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Því verður fyrirkomulag sóttvarna á landamærum endurskoðað, mánaðarlega, og þá einkum til rýmkunar, eftir því sem aðstæður leyfa.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila