Alvarlegur skortur á geðlæknisþjónustu við fullorðna með ADHD

Stjórn ADHD samtakanna lýsti á nýliðnum aðalfundi yfir þungum áhyggjum með stöðu geðheilbrigðisþjónustu við þá sem teljist til hóps fullorðna með ADHD.

Samtökin segja að þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ætlað sér að bæta geðheilbrigðisþjónustu sé raunveruleikinn sá að ástandið hafi snarversnað.

Grafalvarlegt ástand hefur skapast hjá fullorðnum einstaklingum með ADHD sem þurfa að leita sér þjónustu geðlæknis til greiningar og lyfjameðferðar. Samkvæmt leiðbeiningum Embættis landlæknis mega eingöngu þeir sem eru undir eftirliti geðlæknis hefja lyfjameðferð við ADHD en nú er svo komið að geðlæknar taka ekki við nýjum skjólstæðingum og því reynist einstaklingum með ADHD ógerningur að hefja lyfjameðferð og hafa í engin hús að venda. ADHD teymi Landspítalans sinnir greiningu og meðferð á vegum hins opinbera en biðlistinn telur í dag rúmlega 3 ár. “ segir í fréttatilkyningu samtakanna vegna málsins.

Þá segir að ef grannt sé skoðað komi í ljós að margir af fullorðnum einstaklingum með ADHD gengur illa að fóta sig í lífinu og þurfi á aðstoð að halda á ýmsum sviðum svo sem námslega, félagslega og í atvinnulífinu. Nauðsynlegt sé að veita þessum hópi viðeigandi þjónustu, gera þeim kleift að hámarka styrkleika sína og um leið bæta lífsskilyrði.

Samtökin segja að þau hafaium langt skeið vakið athygli á slæmu aðgengi að geðlæknaþjónustu en nú keyri um þverbak, ástandið er orðið grafalvarlegt og jafnvel lífsógnandi.

Hið opinbera þarf að auka enn frekar við fjármagn sem varið er í þennan málaflokk. Sjálfstætt starfandi geðlæknar anna ekki eftirspurn og geðheilsuteymi heilsugæslunnar sinnir einungis þeim sem þurfa á sérhæfðari þjónustu og meðferð að halda. Samtökin krefjast aðgerða til handa einstaklingum með ADHD en öll óvissa og bið í geðheilbrigðsmálum ógnar heilsu þeirra enda um að ræða hóp í einstaklega viðkvæmri stöðu.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila