Leita leiða til þess að bæta samkeppnisstöðu álversins í Straumsvík

Rio Tinto eigandi álversins í Straumsvík hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að fyrirtækið leiti nú leiða til þess að bæta samkeppnisstöðu álversins í krefjandi aðstæðum sem nú ríkir á álmörkuðum.

Í,tilkynningu frá Landsvirkjun vegna málsins segir að aðstæður á álmörkuðum séu mjög krefjandi um þessar mundir, meðal annars út af lágu álverði, minni eftirspurn og mikilli framleiðsluaukningu í Kína undanfarin ár. Einnig hafi álverið í Straumsvík lent í rekstrarerfiðleikum sem hefur meðal annars haft áhrif á afkomu þess.


Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir unnið sé að sameiginlegri lausn á málinu

Við sýnum því skilning að aðstæður fyrirtækisins eru krefjandi og eigum í samtali við Rio Tinto til þess að fá sameiginlega sýn á stöðu mála. Við höfum sagt og teljum áfram að raforkusamningurinn sé sanngjarn fyrir báða aðila og að það séu fleiri þættir en raforkuverðið sem hafa áhrif á þeirra stöðu en þetta erum við að greina nánar í sameiningu.“,segir Hörður.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila