Antifa sem skilgreind hafa verið sem hryðjuverkasamtök virðast flutt í Hvíta húsið og sameinast Bandaríska ríkinu. Að minnsta kosti er það sú tilfinning sem margir fá þegar þeir ætla inn á vefsvæði Antifa sem er á slóðinni antifa.com. Þetta var meðal þess sem fram kom í síðdegisútvarpinu í dag en þar var Sigurlaug Ragnarsdóttir blaðamaður gestur Arnþrúðar Karlsdóttur.
Fram kom í máli Sigurlaugar að svo virðist sem Joe Biden skuldi Antifa fjármuni en hópur Antifa liða hefur sést ganga um með skilti með slagorðum þar sem skorað er á Biden að greiða skuld sína við Antifa. Óljóst er hvernig meint skuld kom til en því hefur verið haldið fram að Biden hafi greitt Antifa fyrir þátttöku sína í mótmælunum á Capitol Hill.
Það vekur talsverða athygli að þegar málið er skoðað nánar kemur í ljós að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Antifa hengir sig við forsetann því síðastliðið haust vísaði vefsíða Antifa inn á opinbert vefsvæði Biden en í dag. Þá vekur það einnig athygli að ekkert hafi heyrst frá forsetanum vegna tengingar Antifa við vef Hvíta hússins.
Þá var í þættinum framhald frá því í síðdegisútvarpinu í gær á umræðu um meginstraumsfjölmiðlanna en Sigurlaug telur að nýir frjálsari fjölmiðlar eigi eftir að koma fram en að öllum líkndum muni Trumpfjölskyldan koma að stofnun þeirra
“ ég tel að Elon Musk og sonur Trump vinni að því nú að búa til eins konar nýtt google og fjölmiðla sem verði mn frjálsari en hinir hefðbundnu miðlar„.
Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan