Arion banki lækkar vexti

Arion banki hefur ákveðið að lækka hjá sér vexti á lánum í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands. Í tilkynningu frá Arion segir að vaxtabreytingarnar nú feli í sér umtalsvert meiri lækkun á vöxtum útlána bankans en innlánum, viðskiptavinum til hagsbóta.

Breytilegir óverðtryggðir íbúðalánavextir lækka um 0,50% og hafa þá lækkað um 3,06% frá byrjun árs 2019 og hafa óverðtryggðir breytilegir vextir Arion banka lækkað mest á markaði.

Þá segir í tilkynningunni að fjármögnun banka sé fjölbreytt og samanstandi t.d. af innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlendri skuldabréfaútgáfu og eiginfjárgerningum. Fjármögnunin fylgir því ekki nema að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans og speglast vaxtaákvarðanir Seðlabankans því ekki með beinum hætti í vaxtakjörum banka. Arion banki hefur aftur á móti lagt sig fram um að skila vaxtaákvörðunum Seðlabankans sem best til viðskiptavina sinna og var að auki fyrstur banka til að lækka vexti vegna lækkunar bankaskatts.

Helstu breytingar sem taka gildi 1. júní eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán

·         Óverðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,50% og verða 3,54%

·         Fastir 5 ára vextir lækka um 0,60% og verða 4,49%

Verðtryggð íbúðalán

·         Verðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,30% og verða 2,74%

·         Fastir 5 ára vextir lækka um 0,10% og verða 2,54%

Bílalán

·         Vextir bílalána lækka um allt að 0,60%

Kjörvextir

·         Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,40%

·         Almennir verðtryggðir kjörvextir lækka um 0,20%

Annað

·         Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um allt að 0,75%

Innlán

·         Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05% – 0,75%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila