Ásökunum um kynferðislegt áreiti beitt miskunnarlaust í þeim tilgangi að þagga niður í mönnum

Ásökunum um kynferðilegt áreiti er beitt miskunnarlaust sem vopni gegn mönnum til þess að þagga niður í þeim. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristins Sigurjónssonar rafmagnsverkfræðings í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar.

Kristinn segir þöggun almennt eiga sér langa sögu og eitt af elstu dæmunum sé um 50 ára gamalt. Það snýr gagnvart konu sem opnaði fyrsta kvennaathvarfið í Bretlandi sem hafi mátt þola árásir af hálfu feminista í þeim tilgangi að þagga niður í henni vegna þess að hún greindi frá því að 62% þeirra kvenna sem leituðu í kvennaathvarf hennar hefðu verið að beita eiginmenn sína ofbeldi. Þetta hafi gerst vegna þess að þessi frásögn hafi ekki hentað málstað feminista.

Kristinn rakti í þættinum ótal dæmi um hvernig ráðist hefur verið gegn fólki sem hefur á einhvern hátt þótt óþægilegt, hafa sagt eitthvað sem ekki hentaði og þar fram eftir götunum. Nú sé það hins vegar svo að þegar konur komi fram með ásakanir, jafnvel óljósar um kynferðislegt áreiti manna sem losna þarf við og þagga niður í án þess að kæra þá. Ásökunun sé borin fram og svo er treyst á að fjölmiðlar sjái um afganginn.

Það sé hins vegar svo segir Kristinn að fjölmiðlar kafi ekki djúpt ofan í þessi mál heldur séu þau sett fram á yfirborðlegan hátt og fréttir fluttar dag eftir dag af viðkomandi máli, allt þar til einhver stígur fram með aðra hlið á málinu eða varpar nánara ljósi á það og þá slái skyndilega þögn á fjlmiðlanna og ekkert sé fjallað meir um málið.

Kristinn nefnir tvö dæmi þar sem umfjöllun var skyndilega hætt þegar það hentaði allt í einu ekki málsstaðnum, mál Vítalíu Lazarevu þar sem umfjöllun um ásakanir hennar var skyndilega hætt eftir að fram kom að ásakanirnar hefðu verið settar fram í þeim tilgangi að stunda fjárkúgun gagnvart þeim mönnum sem sagðir voru hafa áreitt hana.

Þá rifjar Kristinn upp dæmi um mann sem starfaði í Háskóla Íslands við kennslu og var sagður hafa haldið ungum konum nauðugum á heimili sínu dögum saman. Síðan hafi kona sem var á staðnum stigið fram sem hafi sagt að stúlkurnar sem um ræðir hafi verið þar af fúsum og frjálsum vilja, þær hafi verið nokkurs konar grúppíur. Það mál hafi einnig skyndilega verið þaggað niður þegar sannelikurinn hafi komið fram enda hafi það ekki hendað málstað feminista.

Þá benti Kristinn á þá áhugaverðu staðreynd að það hafi bók verið til sölu á Amazon sem fjallaði um hvernig ætti að taka karlmenn niður í einu skrefi en sú bók væri uppseld.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila