Kanna hvort fleiri stofnanir á vegum ráðuneyta geti verið staðsettar á landsbyggðinni 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í gær þar sem „áréttað var mikilvægi þess að“ skoðað verði gaumgæfilega hvort að þær stofnanir sem ráðuneyti áformi að setja á laggirnar geti verið staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sé lögð rík áhersla á að móta og byggja upp öflugt og sterkt samfélag. Ríkisstjórnin telji að mikil verðmæti felist í því að landið allt sé í blómlegri byggð og að landsmenn eigi að hafa jafnan aðgang að þjónustu, atvinnutækifærum og lífskjörum um land allt.

Í byggðaáætlun er að finna aðgerðir sem allar eiga að miða að því að styrkja landsbyggðina. Í henni eru 54 aðgerðir sem allar eiga að þjóna fyrrnefndu markmiði en aðgerðirnar falla undir þrú svið, en saman eiga þai að stuðla að jafnara aðgengi að þjónustu, atvinnu og að stuðla að sjálfbærri þróun byggða. Ábyrgð á framkvæmd þessara 54 aðgerða dreifist síðan á flest ráðuneyti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila