Vilja að Bandaríkjaher setjist hér að á ný

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Bandaríkjaher setjist að hér á landi á ný.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að Bandaríkjaher setjist hér að á ný?. Niðurstaðan var eftirfarandi:


Já 59,6%

Nei 35,4%

Hlutlaus 5,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila