Áform um lögfestingu varnarlínu á hlutfall fjárfestingabankastarfsemi innlánsstofnana birt í samráðsgátt

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt áform um lögfestingu varnarlínu um hlutfall fjárfestingarbankastarfsemi innlánsstofnana í samráðsgátt stjórnvalda.

Fram kemur í tilkynningu að áformin séu sett fram í kjölfar birtingar hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið þar sem lagt er til að Fjármálaeftirlitinu verði í lögum falið að setja reglur til að takmarka fjárfestingarbankastarfsemi viðskiptabanka.

Áformað er að takmarka beina og óbeina stöðutöku kerfislega mikilvægra innlánsstofnana við 15% af eiginfjárgrunni þeirra, sem er innan þess ramma sem lagður er til í hvítbókinni.

Hvítbókin hefur verið tekin til umræðu á Alþingi og í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins.

Þá segir í tilkynningunni að frestur til að veita umsögn um málið sé til 26. ágúst. Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp á Alþingi um varnarlínuna í nóvember á þessu ári.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila