Barnaverndar tekur í notkun nýtt húsnæði sérsniðið að þörfum fjölskyldna

Barnavernd Reykjavíkur tók í notkun á dögunum nýtt húsnæði að Ármúla 4. Húsnæðið er sérsniðið að þörfum foreldra og barna sem þurfa á aðstoð Barnaverndar að halda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Á hverju ári tekur starfsfólk Barnaverndar Reykjavíkur á móti fjölda barna og fjölskyldna þeirra í húsnæði sínu. Um er að ræða viðtöl ráðgjafa við foreldra og börn, viðtöl sálfræðinga við börn sem orðið hafa vitni að heimilisofbeldi og regluleg viðtöl við fósturforeldra og börn í fóstri. Þá segir í tilkynningunni að orðið hafi mikilvæg bragarbót á starfsemi Barnaverndar Reykjavíkur sem geti nú sinnt umgengni undir eftirliti í húsnæði sem er sérsniðið að þeirri starfsemi.

„Er hér fyrst og fremst um að ræða umgengni kynforeldra við börn sem eru vistuð utan heimilis, ýmist í tímabundnu eða varanlegu fóstri. Eðli máls samkvæmt er mikilvægt að unnt sé að taka á móti börnunum í notalegu rými þar sem jafnframt er gott næði. Því var mikið lagt í nýja húsnæði Barnaverndar og eru innréttingar og aðgengi til fyrirmyndar.“ segir í tilkynningunni.

Í nýja húsnæðinu er aðgengi fyrir fatlað fólk gott. Einnig sé mikill kostur að engin önnur starfsemi er í húsinu, sem gerir starfsfólki betur kleift að gæta öryggis og persónuverndar fyrir skjólstæðinga sína.

„Við erum gríðarlega ánægð með nýja húsnæðið, sem uppfyllir allar kröfur fyrir starfsemi eins og okkar, þar sem bæði þarf að huga að öryggi og trausti,“ segir Katrín Helga Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila