Joe Biden er sjúkur maður sem sem ekki fylgir læknisráði – verður pínlegra fyrir Bandaríkjamenn á degi hverjum
Það varð virkilega vandræðalegt þegar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, spurði í ræðu hvort þingkonan Jackie Walorski – sem lést í bílslysi í ágúst – væri í herberginu. „Jackie, ertu hér? Hvar er Jackie?“ muldraði sýnilega ringlaður Biden þegar hann flutti opnunarræðu sína á ráðstefnu Hvíta hússins um hungur.
Hinn 79 ára gamli forseti horfði út í áhorfendur og hélt áfram:
„Hún átti að vera hér.“
Þingkonan sem Biden spurði hvort væri ekki viðstödd, Jackie Walorski, var þingkona í fulltrúadeildinni og upphafsmaður ráðstefnunnar. Hún lést hins vegar í bílslysi í ágúst, sem mikið var skrifað og talað um.
Joe Biden sendi fjölskyldu hennar samúðarkveðjur og lýsti þakklæti sínu fyrir pólitískt starf hennar. Að auki flaggaði Hvíta húsið í hálfa stöng til heiðurs hinnar látnu þingkonu.
Karine Jean-Pierre, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, fékk spurningu um mistök Bidens á blaðamannafundi Hvíta hússins í gær. Skýring hennar var sú, að forsetinn væri fullur af hugsunum um hinn látna og slíkir hlutir gerast. Enn blaðamannanna á staðnum andmælti og sagði:
„Ég hugsa um John Lennon á hverjum degi en ég fer ekki að leita að honum um allt.“
Vissi ekki hvar hann var eða hvað hann átti að gera eftir ræðu á þingi SÞ