Reuters greinir frá því, að Joe Biden Bandaríkjaforseti hafi sagt á föstudaginn að „við munum deila með okkur af bóluefni, þegar við eigum umframbirgir.“ Þýðir þetta að bæði bóluefni, sem framleidd eru í Bandaríkjunum lokast þar inni eins og t.d. AstraZeneca sem hefur verksmiðjur þar, þrátt fyrir að bóluefni fyrirtækisins séu ekki enn viðurkennd af lyfjayfirvöldum Bandaríkjanna. Bóluefni Pfizer og BioNTechs eru að mestum hluta framleidd í Bandaríkjunum og því mun útflutningsbann koma niður á lofuðum afhendingum bóluefna til landa t.d. í Evrópusambandinu eins og Svíþjóð.
Embættismaður, sem Reuters talaði við og tók þátt í viðræðum ESB og Bandaríkjanna, segir að „Bandaríkin hafi þvertekið fyrir að bóluefni AstraZeneca verði fraktað til Evrópusambandsins.“ AstraZeneca hefur reynt að leysa málið með sendingu frá Indlandi en samkvæmt Richard Bergström sem sér um bóluefnainnkaup til Svíþjóðar, hafa Indverjar einnig bannað útflutning hjá sér.
Rússar hlaupa í skarðið með bóluefninu Sputnik
Öngþveiti ríkir hjá ESB vegna aðfanga bóluefna en lönd eins og Slóvakíen og Tékkaland hafa tryggt mikið magn af rússneska bóluefninu Sputnik. Ekkert er til fyrirtstöðu hjá Rússum að afhenda bóluefnið og verður helmingur pantana afgreiddur þegar í mars og apríl. Andrej Babis forsætisráðherra Tékkalands sagði í sjónvarpsviðtali í vikunni að landið gæti ekki beðið eftir samþykkt EMA-lyfjastofnunar ESB á rússneska bóluefninu, heldur myndu Tékkar hefja bólusetningu án slíkrar samþykktar.
Richar Bergström segir ekki útilokað, að Svíþjóð velji sömu leið en fram að þessu hefur stjórnmálaþvarg staðið kaupum frá Rússlandi fyrir þrifum.