Biðla til borgarbúa að sýna tillitsemi og þolinmæði

Starfsfólk umhverfis og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér erindi til borgarbúa þar sem biðlað er til íbúa borgarinnar að sýna starfsmönnum borgarinnar tillitsemi og þolinmæði í því ástandi sem nú ríkir.

Í tilkynningunni segir meðal annars

“ Mikið hefur mætt undanfarið á starfsfólki borgarinnar sem starfar við þjónustu sem við þurfum öll á að halda eins og sorphirðu, mokstri gatna og göngustíga, umhirðu í borgarlandinu og að svara í síma og tölvupósti. Reykjavíkurborg hefur þurft að bregðast við með margvíslegum hætti til að tryggja öryggi starfsfólks og borgarbúa allra. Reynt er eftir besta megni að halda uppi eðlilegri þjónustu en sökum viðbúnaðar og sóttvarna vegna COVID-19 er það ekki alltaf mögulegt„.


Endurskipuleggja vegna heimsfaraldursins


Í tilkynningunni segir að allri starfsemi umhverfis og skipulagssviðs sé enn haldið úti en nauðsynlegt hafi verið að fara í endurskipulagningu vegna tilmæla Almannavarna “ Þjónustan birtist því stundum með öðrum hætti og getur tekið lengri tíma. Allir leggja sitt af mörkum. Borgarbúar þurfa að sýna þessum óvenjulegum aðstæðum skilning og þolinmæði á meðan heimsfaraldurinn stendur yfir.

Mikilvægt er að týna ekki gleðinni en rannsóknir hafa sýnt að jákvæðar tilfinningar geta eflt ónæmiskerfið eins og Embætti landlæknis hefur bent á. Við stöndum öll saman vörð um borgina okkar og komum vel fram hvert við annað. Gott er að sýna kurteisi og skilning á stöðu mála á þessum tímum. Takk fyrir að taka tillit til fólksins sem vinnur þessi mikilvægu störf„, segir í tilkynningunni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila