Breytingar á lögum um póstþjónustu kynntar í samráðsgátt stjórnvalda

Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um póstþjónustu hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 2. október 2022.

Í tilkynningu segir að í frumvarpsdrögunum séu m.a. lagðar til breytingar sem fela í sér heimild fyrir aukinni notkun bréfakassasamstæðna. Þannig þyrfti pósturinn aðeins að stoppa á einum stað í stað þess að keyra við í hverju húsi og setja bréf um bréfalúgu. Í kynningu á frumvarpinu á samráðsgátt segir:

„Ljóst er, sé litið til framtíðar í póstþjónustu bæði hér á landi og t.d. í Noregi þá mun verða meiri notkun á bréfakassasamstæðum í framtíðinni í stað útburðar í hvert hús, meira að segja á stærri þéttbýlisstöðum. Hefur þetta sparnað í för með sér og jákvæð umhverfisáhrif.“

Einnig er lagt til í frumvarpsdrögunum að ráðherra verði veitt heimild til að innleiða framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og -ráðsins með reglugerð líkt og heimild hefur verið veitt með grunnreglugerð um pakkasendingar yfir landamæri. Grunnreglugerðinni er einkum ætlað að ýta undir traust neytenda á því að eiga viðskipti á netinu milli landa með aukinni söfnun og miðlun upplýsinga um pakkasendingaþjónustu. Framkvæmdarreglugerðin varðar sérstök eyðublöð sem póstrekendum af ákveðinni stærð, ber að nota. Hafa ber í huga að reglugerðin gildir aðeins yfir landamæri en ekki innanlands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila