Breytingar kynntar á umferðarlögum til að auka öryggi vegfarenda á smáfarartækjum

Drög að frumvarpi um breytingar á umferðarlögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.

Í frumvarpsdrögunum eru ýmis ný ákvæði sem hafa það markmið að auka öryggi vegfarenda á smáfarartækjum í umferðinni en nýta jafnframt kosti þeirra. Breytingarnar byggja á tillögum starfshóps um smáfarartæki sem skilaði skýrslu í júní sl.  Helstu tillögur frumvarpsins sem varða smáfarartæki eru:

  • Mælt er fyrir um að heimilt sé að aka smáfarartæki á vegi þegar leyfilegur hámarkshraði er ekki meiri en 30 km á klst. en veghaldara sé þó heimilt að leggja bann við umferð þeirra á einstökum vegum eða vegarköflum. 
  • Börnum yngri en 13 ára er bannað að aka smáfarartækjum og kveðið er á um hjálmaskyldu barna yngri en 16 ára við akstur slíkra farartækja.
  • Sett er hlutlægt viðmið um ölvun ökumanns smáfarartækis sem fela í sér sömu mörk og eiga við akstur vélknúinna ökutækja og jafnframt um viðurlög við slíkum brotum.
  • Mælt er fyrir um að óheimilt sé að eiga við rafmagnsreiðhjól, smáfarartæki eða létt bifhjól í flokki I svo að hámarkshraði þeirra verði umfram 25 km á klst. Sama á við um létt bifhjól í flokki II að undanskildu því að hámarkshraði þeirra má vera 45 km á klst.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, sagði frá áformunum á Umferðarþingi 2022 á dögunum en eitt meginviðfangsefni þingsins var öryggi óvarinna vegfarenda í umferðinni: „Með því að ferðast stuttar vegalengdir gangandi, hjólandi eða með strætó drögum við úr losun gróðurhúsaloftegunda, stuðlum að betri loftgæðum í þéttbýli og vinnum að bættri lýðheilsu. Það stafa þó ýmsar hættur að óvörðum vegfarendum. Því er nauðsynlegt að gera breytingar á regluverki umferðar til að auka öryggi þeirra sem nýta þennan fararmáta, m.a. á smáfarartækjum,“ sagði ráðherra. 

Í kynningu um frumvarpið í samráðsgátt segir að umferð smáfarartækja, sérstaklega rafhlaupahjóla, hafi aukist og slysum hafi fjölgað mikið á síðustu árum. Breytingar á umferðarvenjum hafa leitt til þess að 17% þeirra sem slösuðust alvarlega í umferðinni á síðastliðnu ári voru á rafhlaupahjólum, en umferð þeirra er þó innan við 1% af allri umferð. 42% alvarlega slasaðra í umferðinni á síðasta ári voru gangandi, hjólandi eða á rafhlaupahjóli og stór hluti fyrrgreindra slysa átti sér stað seint á föstudögum eða laugardögum.

Í hópi óvarinna vegfarenda sem slösuðust alvarlega í umferðinni á síðastliðnu ári voru ungmenni áberandi og komu mörg ung börn, allt niður í átta ára gömul á neyðarmóttöku Landsspítalans vegna slysa á rafhlaupahjólum. Framleiðendur mæla almennt fyrir um 14 til 16 ára aldurstakmark til notkunar rafhlaupahjóla sinna en ung börn má sjá á rafhlaupahjólum ætluðum eldri notendum. Þá er með einfaldri breytingu hægt að aka aflmiklum rafhlaupahjólum á mun meiri hraða en þeim er ætlað að ná, svo að þau eiga til dæmis enga samleið með umferð gangandi vegfarenda.

Smelltu hér til þess að skoða nánar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila