Byssukúlurnar hvína í Svíþjóð – skotið á strætisvagn í Stokkhólmi og íbúðarhús í Enköping – að minnsta kosti tveir særðir

Svíþjóð er fyrir löngu farið fram úr Villta vestrinu og er sannkölluð Skotþjóð Norðurlanda. Fréttaritari hefur engin tök á að greina frá öllu daglegu ofbeldi í sæta landinu, þar sem börn eru skotin á leikvelli, æfa sig í að hlaupa frá leikvellinum inn í leyniherbergi í skólum og farin að biðja um skotheld vesti til að nota í skólanum.

Nýjasta dæmi upplausnarástandsins er skotárás á íbúð í Enköping og þar sem a.m.k. tveir einstaklingar sem voru inni í íbúðinni særðust að sögn Magnus Jansson Klarin blaðafulltrúa lögreglunnar:

„Við fengum samtal frá íbúðinni sem lenti í skotárásinni. Mörgum skotum var skotið utanfrá gegnum glugga og dyr.“

Í nótt lenti strætisvagn í skothríð í Sundbyberg í norðurhluta Stokkhólms.

Mikael Pettersson hjá lögreglunni í Stokkhólmi sagði í viðtali við Expressen:

„Það var skotið mörgum skotum á strætisvagn með 10 manns, farþegum og bílstjóra. Það er einskær heppni að enginn varð fyrir kúlu.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila