Reglum um skimun á landamærum breytt

Sóttvarnalæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að breyta reglum um skimun á landamærum vegna COVID-19. Fram kemur í tilkynningu að breytingin snúi eingöngu að íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sóttkvíar eða skimunar á landamærum en gert er ráð fyrir að einstaklingar úr fyrrnefndum hópi sem velja skimun þurfi að fara aftur í skimun 4 – 5 dögum eftir komuna til landsins og vera í sóttkví þar til niðurstaða seinni sýnatökunnar liggur fyrir. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis og er stefnt að því að breytingin taki gildi ekki seinna en 13. júlí næstkomandi.

Fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis að reynslan af skimun á landamærum leitt í ljós hættu á því að einstaklingar sem hafi smitast nýlega beri með sér smit sem greinist ekki við landamæraskimun en komi fram síðar. Sóttvarnalæknir telur að tilvik sem þessi skapi hættu á hópsmitum og þá sérstaklega þegar í hlut eiga einstaklingar með útbreitt tengslanet hér á landi. Þess vegna leggur hann til að breyttar reglur um skimun taki ekki til almennra ferðamanna heldur verði bundnar við íslenska ríkisborgara og aðra sem eru búsettir hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila