Alltaf troðfullt á fundum Donald Trump
Það er stutt á milli funda Donalds Trump fv. Bandaríkjaforseta núna. Á föstudag var hann með stórfund í Wilmington í Norður-Karólínu og fyrir viku síðan var hann með stórfund í Ohio. Donald Trump dregur til sín fjölda fólks sem vill vera á fundum hans og eru til marks um þann stjórnmálakraft sem repúblikanar standa fyrir í Bandaríkjunum.
Við munum vinna Hvíta húsið 2024
Mikill fögnuður varð meðal áheyranda, þegar Trump tilkynnti að Repúblikanar myndu vinna Hvíta húsið til baka ár 2024. Hrópaði mannskarinn USA, USA, USA svo tók undir á staðnum. Allt bendir til þess að Trump muni tilkynna framboð til forseta á ný, eftir að milliþingskosningar eru afstaðnar.
Myndband af öllum fundinum hér að neðan:
Demókratar eiga engin pólitísk rök eftir og grípa þá til Hitlers – Hillary Clinton kemst aldrei yfir það að Trump varð forseti en ekki hún
„Ég man þegar ég var ung og reyndi að átta mig á því hvernig fólk dróst í grundvallaratriðum að Hitler? Hvernig gerðist það? Og ég horfði á fréttamyndir og ég sá þennan gaur standa uppi og væla, fólk hrópaði og réttir upp höndina. Hvað kom fyrir þetta fólk? Af hverju trúa þeir þessu? Þú sást samkomuna í Ohio hér um kvöldið. Trump er þarna að væla í meira en klukkutíma og þú ert með raðir af ungum mönnum með uppréttar hendur. Og ég hugsaði, hvað er í gangi?“