Trump náðaði fyrrum þjóðaröryggisráðgjafa sinn Michael Flynn sem hafði játað að hafa logið að FBI en seinna dró það til baka. Flynn er fv. hershöfðingi Bandaríkjahers og Trump rak hann eftir einungis 24 daga í starfinu fyrir forsetann 2017. Sagði forsetinn að sú ákvörðun hafi verið tekin eftir að Flynn „laug að varaforsetanum og FBI.“ Flynn gerði samkomulag við Robert Mueller sem rannsakaði íhlutun Rússa í forsetakosningunum 2016 og viðurkenndi að hafa komið með ósannar fullyrðingar um samskipti sín við rússneska sendiherrann. Flynn tilkynnti síðar í janúar 2020 að hann myndi draga til baka játningu sína.
Trump Bandaríkjaforseti tísti að „það væri honum mikill heiður að tilkynna að Michael T. Flynn hershöfðingi hefði fengið fulla sakaruppgjöf. Hamingjuóskir til Flynns hershöfðingja og dásamlegrar fjölskyldu hans, ég veit að þið munuð eiga stórkostlega Þakkargjörðarhátíð!“
Fjölskylda Flynns sendi þakkir sínar til forsetans fyrir að „hafa svarað bænum okkar og bænum þjóðarinnar með því að létta byrðum óréttlætis af herðum bróðurs okkar Michael með fullri sakaruppgjöf.“
Demókratinn Adam Schiff, formaður Öryggisnefndar þingsins, sagði í viðtali við CNN „hvað haldið þið að fólk í heiminum hugsi þegar við erum með forseta sem hegðar sér eins og skipulagður glæpaforingi. En það er það sem Donald Trump er. Hann var svona þegar hann fór í forsetann og hann mun sýna nákvæmlega hver hann er síðustu daga forsetaembættisins.“