Dönsku mannréttindasamtökin FRIDA stefna fjölda ráðuneyta vegna COVID-19 lokana

Dönsku mannréttindasamtökin FRIDA hafa kært fjölda ráðuneyta og forsætisráðherra Danmerkur Mette Frederiksen og heilbrigðisráðherrann Magnus Johannes Heunicke fyrir takmarkanir á frelsi Dana vegna covid-19.(@Sksk. FRIDA)

Dönsku mannréttindasamtökin FRIDA hafa kært fjölda ráðuneyta 1. sept. 2021 vegna aðkomu þeirra að COVID-19 lokunum í Danmörku. Stefnan hefur verið skráð hjá héraðsdómi Kaupmannahafnar með málsnúmer BS-32590/2021-KBH.

Í fréttatilkynningu Frida segir, að eftirtaldir aðilar eru kærðir fyrir lokanir vegna Covid-19:

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Lýðheilsan
  • Magnus Johannes Heunicke heilbrigðisráðherra
  • Heilbrigðisráðuneytið (þ.m.t. landlæknisembættinu)
  • Mette Frederiksen forsætisráðherra
  • Viðskiptaráðuneytið
  • Menntamálaráðuneytið

Er þess krafist að lokanir vegna Covid-19 verði dæmdar ólöglegar og aflétt. Búast má við nokkrum mánuðum í formlega ákærumeðferð áður en sjálf ákæruatriðin verða tekin fyrir en FRIDA fer fram á að Eystri landsréttur taki málið fyrir. FRIDA fagnar afnámi lokana og annarra covid takmarkandi aðgerða ríkisstjórnarinnar, sem FRIDA segir að ríkisstjórnin hafi neyðst til að gera m.a. vegna þrýstings annarra stjórnmálaflokka og mannréttindasamtaka. Samtökin benda á að þótt verið sé að létta á takmörkunum núna, þá hafi heilbrigðisráðherrann sagt, að gripið yrði til slíkra aðgerða aftur við dreifingu smits að nýju. FRIDA vill að slíkar aðgerðir verði dæmdar ólöglegar og þar með óboðlegar í framtíðinni.

„Með lögum skal land byggja“ stendur skrifað í stein yfir anddyri Héraðsdóms Kaupmannahafnar. (©Johannes Jansson CC 2,5)

„Kórónukreppan hefur sýnt, að meirihluti þingmanna framkvæmir vald sitt á óverjandi hátt…Danir hafa ekki gefið þeim vald til að loka okkur öll inni og slökkva á samfélaginu.“ Vilja mannréttindasamtökin FRIDA að „tekin verði afstaða til hvort við njótum raunverulega verndar stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu eða ekki; því ef aðgerðirnar eru ekki ógildar sem andstæður þeirra, þá eru hvorki stjórnarskráin né mannréttindasáttmálinn pappírsins virði, sem þau eru skrifuð á!“

Mannréttindasamtökin vísa einnig til hópkæru þýsk-bandaríska lögfræðingsins Reiner Fuelmichs vegna lokana yfirvalda og fleiri annarra mála sem í gangi eru gegn yfirvöldum víða um heim. Einnig vísa þau bæði til kafla dönsku stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu:

Danska stjórnarskráin:
§ 71. Grein. 1. Persónulegt frelsi er friðhelgt. Enginn danskur ríkisborgari má sæta neins kyns frelsissviptingu vegna stjórnmálaskoðana eða trúarlegra viðhorfa eða vegna uppruna.
Grein 2. Gæsluvarðhald getur aðeins farið fram á grundvelli laga.

Mannréttindasáttmáli Evrópu:
Grein 3. Bann við pyndingum
Enginn má sæta pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu
Grein 5. Réttur til frelsis og öryggi einstaklinga
Allir eiga rétt á frelsi og einstaklingsbundnu öryggi. Enginn skal sviptur frelsi nema í eftirfarandi tilvikum og í samræmi við þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um (dómstólsmeðferð m.m.).
Grein 8. Réttur á virðingu fyrir einkalífi og fjölskyldulífi
Grein 11. Funda og samtakafrelsi.
Grein 14. Bann gegn kúgun/misrétti

Í viðtali við Føderalisten segir formaður FRIDA, Mikkel Kaastrup, cand.jur og scient. soc, að FRIDA óski einnig að tekin verði lagaleg afsttaða til áreiðanleika PCR prófa. Einnig að dómstóllinn ákveði, hvort COVID-19 sé almennt hættulegur og samfélagslega mikilvægur sjúkdómur.

Sjá nánar hér

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila